19.11.2007 | 22:20
Bakari eða smiður?
Ég er sammála þessari ákvörðun sýsla í Hafnarfirði. Það má vel vera að síðan sem slík hafi verið lögleg, en það var hins vegar ótrúlega mikið um ólöglegt athæfi sem fram fór þar inni að nánast ógerlegt hefði verið fyrir umsjónarmenn hennar að koma í veg fyrir það allt. Kannski hef ég svona svart/hvíta sýn á tilveruna, en mér finnst tilgangurinn helga meðalið í þessu tilfelli, auðveldara að loka einfaldlega síðunni heldur en að fara að eltast við 95% notenda hennar.
Maður hefur séð ýmiss konar upphrópanir á vefnum í kjölfar fréttarinnar, að verið sé að hengja bakara fyrir smið, af hverju séu bílainnflytjendur þá ekki kærðir fyrir ofsaakstur viðskiptavina sinna, eða verslanir með eldhúsáhöld fyrir hnífsstungur sinna viðskiptavina, en ég tel ekki rétt að líkja þessu saman þar sem í þeim dæmum er um að ræða einstaka svarta sauði meðal viðskiptavinanna meðan í tilfelli torrent.is voru frekar hvítu sauðirnir sjaldséðir.
Það þýðir voðalega lítið að fara að grenja yfir þessu, niðurhal á höfundarréttarvörðu efni án leyfis rétthafa er glæpur, og það er í verkahring yfirvalda að koma í veg fyrir glæpi. Hugmyndin á bakvið p2p er voðalega góð, og hef ég alveg stolist til að notfæra mér slíka þjónustu til að kynna mér nýja tónlist eða sækja sjónvarpsþætti sem ég hef misst af á föstum sýningartíma sínum, en þangað til fundin verður sanngjörn leið til að selja inn á þetta til að dekka nauðsynleg gjöld til rétthafa, þá verður maður bara að kyngja því að svona síður loka oft með stuttum fyrirvara.
pís át.
Bjölli.
|
Lögbannskrafa tekin til greina og Torrent vefnum lokað |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Tónlist, Tölvur og tækni | Facebook


Athugasemdir
já athyglisvert að sjá eitthvern sem er ekki á því að smáís menn og fleiri séu fasistar og fleira í þeim dúr. Málið er einfaldlega þannig að í nágrannalöndum okkar hafa fallið dómar núna í hrönnum þess efnis að það eitt að veita aðgang að höfundarvernduðu efni er ólöglegt. Eins og það er ljúft að geta náð sér í nýjasta þáttinn af greys á nokkrum mínútum - þá veit maður að maður er að brjóta lög með því að dreyfa því áfram - því jú - við verðum að halda hlutfallinu í lagi. Ein lausn sem fleygt hefur verið fram er að rukka foráðamenn þessara síðna um stef gjöld svokölluð en það myndi væntalega leiða til þess að við notendur þyrftum fara að greiða fyrir aðgang að síðum sem torrent.is og um leið og minnst er á rukkun við almúgan tryllist allt.
Rakst annars bara á bloggið þitt í einhverri leit af hugarró hér úr prófatíð á bifröst - kveðja María Einars.
majae (IP-tala skráð) 20.11.2007 kl. 00:36
Magnað hvernig fólk étur vitleysuna upp úr Smáís.
Alltaf þegar það er talað um dóma í nágrannalöndum okkar um torrentsíður þá er talaðu um að dómar falli þannig að þannig síðurólöglegar. Afhverju talar enginn um hina sænsku ThePirateBay? Hún var tekin niður í þrjá daga, vegna þrýstings á sænsk stjórnvöld, en var síðan dæmd sem lögleg og blómstrar núna sem aldrei fyrr.
SIgurður (IP-tala skráð) 20.11.2007 kl. 12:30
Síðast þegar ég gáði eru blessunarlega ekki sömu lög hér og í Svíþjóð. Þeir hafa klúðrað höfundarréttarmálum gersamlega, rétt eins og Íslendingar gerðu árum saman.
Ég þekki fullt af fólki sem hefur notað torrent, en enginn, ekki einn einasti, hefur nokkurntíma notað hana til annars en þjófnaðar á höfundarréttarvörðu efni, enda síðan sérhönnuð til svoleiðis athæfis.
Ingvar Valgeirsson, 24.11.2007 kl. 12:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.