Mótlæti er til að sigrast á!

Ég veit ég hef ekki bloggað síðan í fyrrasumar, en eftir leikin áðan þá verð ég að láta rödd mína berast , því ég veit hvað KR-ingar geta oft verið kröfuharðir.

Leikurinn áðan tapaðist. Gamla, „góða“, FH-grýlan. Fuck the grýla. FH vann titilinn í fyrra þrátt fyrir að tapa 19 stigum á tímabilinu. Það þýðir að við megum tapa báðum leikjum gegn FH og ÍBK og samt eiga 7 stig to spare!!! Nú er málið bara að hugsa um næsta leik (sem ég man ekki hver er og skiptir svo sem ekki öllu máli hvorteðer), ef spilamennskan verður eins og í dag, þá er KR að fara að valta yfir öll lið á Íslandi nema hugsanlega FH og ÍBK, svo ef menn bara halda haus, þá erum við í góðum málum! Eitt tap gegn FH er ekki að ráða úrslitum. Málið er að sýna topp spilamennsku eins og liðið gerði í dag, alla daga, sama hvort andstæðingurinn er FH eða ÍBK eða ÍBV eða Þróttur !!Því ef þessi spilamennska sem sást í dag kemur fram alla daga þá erum við að fara að vinna alla leiki örugglega, nema á móti FH og ÍBK, sem detta þá í jafntefli eða tæplega öðrum hvorum megin, eins og í dag, sem þvi miður datt hinum megin, en það gæti allt eins verið öfugt í næsta alvöru stórleik! Höldum bara haus og „titillinn er okkar í ár!“

kv.b


Kominn aftur í bæinn

Hringferðin dróst aðeins þar sem við ákváðum að dvelja lengur (og spila talsvert oftar) á Norðfirði en áður var áætlað, en ég skreið loksins aftur í bæinn nú undir kvöldmatarleitið. Fín ferð, og fínir fernir tónleikar á landsbyggðinni. Sá Austfirðina í fyrsta skipti og píndi mig og bílinn upp og niður þverhnípta fjallvegina þar. Held að bílnum hafi þó orðið minna meint af en mér, þótt við hefðum þurft að stoppa á Eskifirði og leyfa bremsunum að kólna. Sólbrann aðeins, sérstaklega á bakinu eftir að hafa sofnað í skugga en sofnað svo fast að ég rumskaði ekki fyrr en sólin var löngu löngu gengin fyrir hornið. Var kallaður Zoidberg nokkra daga á eftir fyrir vikið.

Hef nóg annað að gera þessa dagana, en ég reyni að rifja upp helstu punkta ferðarinnar og segja frá henni í lengra máli eftir ekki of marga daga.

pís át
Bjölli.


Átt þú Cheeriosbol ?

Ef einhver hérna á gulan Cheeriosbol frá því einhvern tímann í eldgamla daga að þeir fylgdu með Twinpack í Bónus eða hvernig sem það var í stærð sem passar á fullvaxinn karlmann og er til í að láta hann frá sér (ég sæki að sjálfsögðu, og er jafnvel til í að láta af hendi einhverja smáaura, svo langt er ég tilbúinn að ganga í gríninu) fyrir mánudagskvöldið næsta má sá hinn sami endilega senda mér póst á bjolli "at" lister.is

Lesendur mínir þurfa varla frekari útskýringu á þessari vitleysu í mér. Glöggir lesendur muna kannski að ég á það til að dulbúa mig sem Fjölnismann af því stemningin hjá þeim er svo góð. Ég mætti í Cheeriosbol sem ég gróf upp heima hjá gömlu síðast, og vakti hann mikla kátínu hjá Kára.. Nú virðist vera að fjölga í „Cheerioshópnum“, svo mig vantar helst fleiri Cheeriosboli, svo allavega helmingur af lúðunum í handahófskenndum gulum bolum sé í Cheeriosbolum.

Fjölnismenn eru að koma sterkir inn sem nr.2 hjá mér. Í enska hefur Liverpool lengi gegnt því hlutverki, verið svona uppáhaldslið í meistaradeildinni og í toppslagnum þegar útséð er um að Blackburn ná ekki þangað, og það af sömu ástæðu og Fjölnir eru að ná þeim sess hér heima, stuðningsmennirnir eru einhvern veginn dyggari og sannari en hjá flestum öðrum liðum. Ef ég væri óskrifað blað í boltanum, þá væri Kári líklegri til að draga mig aftur á völlinn en Miðjan. Miðjan er að mínu mati of hrokafull, jafnvel þótt þeir hafi meira til að vera hrokafullir yfir en Kári, þá fara þeir yfir strikið. Maður er líka fljótari að læra lögin hjá Kára. Söngbók Kára var mikið fljótari að síast inn en Miðjusöngvarnir. Það sést í mér eftir einn Fjölnisleik en tvo KR-leiki. Ég kann samt mikið fleiri Fjölnissöngva...

En ef það verður einhvern tímann barátta um eitthvað milli þessara tveggja liða, þá er samt engin spurning um hvern ég styð. Þjóðerniskenndin (hvernig sem maður heimfærir það orð yfir á hverfi) vegur þyngra en eitthvert stundargaman. Ég vona samt (komist bæði svo langt, sem ég að sjálfsögðu vona) að þessi lið fari ekki að dragast saman í bikarnum fyrr en í úrslitum, svo ég þurfi ekki (þar sem ég verð hvorteðer ekki í bænum þegar liðin mætast í deildinni) að sýna Kára mitt rétta andlit fyrr en í lok tímabils...

takkogbless.
Bjölli.


Þrjú stig í pottinum

1-0 eftir mark úr vítaspyrnu er sennilega ódýrasti sigur sem hægt er að fá. En það eru þó þrjú stig í pottinum, sem er fyrir öllu. Næsti leikur verður hins vegar einhver sá rosalegasti á tímabilinu. Stóru Reykjavíkurliðin mætast í hálfgerðum úrslitaleik um það hvort þeirra verður „Reykjavíkurstoltið“ í ár. Ég ætla að mæta á völlinn og styðja mína menn og vona það besta!

Var líka mjög sáttur við úrslitin hjá FH og Keflavík. Jafnlangt í annað sætið og var áður svosem, en nú er styttra á toppinn er áður, sem skiptir meira máli. Akkúrat úrslitin sem ég vildi sjá úr þeim leik.

takkogbless.
Bjölli


mbl.is Logi Ólafsson: Góð vörn frá fremsta til aftasta manns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flottur leikur

Ólíkt því sem gerðist fyrir 4 árum, þá var úrslitaleikurinn á Evrópumótinu í ár hin fínasta skemmtun. Vitaskuld hefði ég viljað sjá Þjóðverjana vinna, en Spánverjar voru vel að þessum sigri komnir og ekkert nema gott um það að segja, og þá um leið „tími til kominn“.

Það sem ég græt meira er að ekki skuli vera hefð fyrir bronsleik á EM, því kæruleysislegur bronsleikur milli spútnikliða Tyrklands og Rússlands hefði getað orðið enn betri skemmtun. Þá fyrst hefði verið hægt að kalla þessa helgi fótboltaveislu! Litli bróðir, sem er mikill fótboltaspekúlant, sagði að leikir um þriðja sætið væru í burðarliðnum með stækkandi móti árið 2016. Það er ekkert nema framför, reynslan af HM sýnir það að bronsleikir séu oftar en ekki skemmtilegri en sjálfir úrslitaleikirnir, þar sem minna er í húfi.

En sem KR-ingur kannast ég vel við þessa útkomu, að hafa sterkustu söguna á bak við sig en enda í öðru sæti, svo ég er langt því frá að vera að upplifa eitthvað nýtt Tounge

Verst að nú eru alveg tvö ár í að maður fái aðra eins fótboltaveislu sem tekur nógu stuttan tíma til að maður nenni að fylgjast með Tounge

takkogbless
Bjölli.


mbl.is Spánn Evrópumeistari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tónleikar

Lister blæs til rokkveislu á Cafe Rót (ekki í fyrsta skiptið, enda frábært að geta spilað án aðgangseyris og aldurstakmarks) á föstudagskvöldið kl. 21:00

Irony of Apathy sjá um upphitun, og orðið á götunni er að díselmótorinn lumi á nýju (og frumsömdu, ólíkt síðasta „nýja“ lagi) efni!

Engar freistingar á staðnum fyrir þá sem þurfa að vakna á laugardagsmorguninn, og stutt í ódýrasta bjórinn í bænum eftirá fyrir hina sem vilja vaka lengur !

Sjáumst þar!
Bjölli.


Í Grafarvogi er gott að búa..

.. ekki það að ég viti neitt um það, aldrei hef ég búið þar, og langar tæpast til þess, en djöfull er ég stoltur af þeim gulu. Það fer ekki hver sem er með þrjú stig úr Keflavík. Það hefur kannski hjálpað að veður var frekar lygnt, las greiningu á íslenskum fótbolta um daginn í Grapevine, sem sagði að Keflvíkingar stæðu sig yfirleitt þokkalega í fótboltanum af því þeir eru svo vanir því að ráða við íslenska rokið, enda sé það sérstaklega slæmt í Keflavík.

Eins og þeir segja sjálfir í laginu „Við erum Fjölnismenn“, Fjölnir á heim'í úrvalsdeild. Það þarf eitthvað mikið að gerast úr þessu til að þeir falli, sem er bara gott. Ber vissar tilfinningar til þessa liðs, á tvo náfrændur sem eru búnir að vera Fjölnismenn frá upphafi, og vinnufélagi minn á nýja staðnum er búinn að ná að smita mig af mjög vægu tilfelli af Fjölnishjarta. En eitt sinn KR-ingur, alltaf KR-ingur, svo ég fer ekki að skipta, jafnvel þótt ég tæki upp á því að vinna eða jafnvel búa í Grafarvogi, en ég myndi hiklaust hleypa börnunum mínum í hverfisliðið byggi ég þar, ólíkt því sem ég myndi gera hér niðri í bæ.

Annars er ég líka að sjálfsögðu ánægður með uppsveiflu KR í deildinni. 4 töp það sem af er segja lítið, búnir að fara til Keflavíkur og Hafnarfjarðar, sem yfirleitt eru sjálfgefnir tapleikir, og hinir tveir tapleikirnur eru á móti spútnikliði Fjölnis, og „standa í toppliðunum en annars nokkuð miðlungs“-liði Breiðabliks. Liðið heldur sér allavega pottþétt uppi, og gæti vel komið sterkt inn á næsta tímabili, og jafnvel ræst hressilega úr því á þessu ef sveitaliðin fara að dala eins og þau gera svosem oft á seinni hluta tímabilsins.

Áfram KR
Bjölli
mbl.is Fjölnir vann óvæntan sigur í Keflavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tyrkneskir grísir

Rétt náði lokamínútum leiksins áðan þar sem ég þurfti að hanga í sjoppunni til lokunar. Ekkert mark verið skorað í 115 mínútur þegar ég kveiki á tækinu, og lítið að ske, tyrknesk aukaspyrna sem misferst af því að skyttan missteig sig, svo skyndilega, þegar aðeins rúm mínúta er eftir kemur mark! Og að sjálfsögðu telur maður þetta búið, en fyrir jafnvel enn meiri heppni og baráttugleði en gegn Tékkunum, ná Tyrkirnir að setj'ann í síðasta skoti leiksins, þegar uppbótartíminn er rúmlega búinn og dómarinn rétt að bíða eftir að sókninni ljúki. Tyrkir eru kannski lítt hrifnir af grísakjöti, en það verður að segjast að þeir séu búnir að vera svolitlir grísir það sem af er móti Tounge

Ekki mikil gleði í blokkinni hjá mér þessa dagana, á hæðinni fyrir neðan mig býr hópur Portúgala, og fyrir ofan er Króati. Ég er sáttur, Þjóðverjarnir eru enn inni, en kannski guðinn sem er í fýlu út í blokkina mína hafi ákveðið að henda frekar út augnabliksyndinu mínu, Hollendingunum.. Vonum samt ekki, þeir eiga heima í úrslitaleiknum. Hann gat reyndar skiljanlega ekki hent bæði út Þýskalandi og Portúgal á sama tíma, og hefur stoppað Portúgalina fyrst þar sem það eru fleiri í byggingunni sem halda með þeim.. Tounge Væri alveg eftir heppni Tyrkjanna að þeir legðu Þjóðverjana í undanúrslitunum og enduðu í úrslitaleiknum gegn (vonandi) Hollendindingum. Vona ekki, en við sjáum til.

pís át
Bjölli.


mbl.is Tyrkir unnu í dramatískum leik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fordómar

fff.. bara af því maðurinn heitir van der Vaart (borið fram "fan der Fart"), þá er hann umsvifalaust grunaður um að vera sá sem „fartaði“ á bekknum Tounge

Sá þetta myndbrot einmitt í útsendingunni í gær, vorum að spá í þetta heima, hvort einhver þeirra hefði verið að reka við Tounge

Vonum bara að þetta hafi ekki of mikil áhrif á gengi liðsins, þeir eiga alveg fullkomlega skilið að fara alla leið í ár.

takkogbless
Bjölli.


mbl.is Hollendingar að kafna í prumpfýlu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekið gegn einstefnu

Var að lesa frétt úr DV frá því í vikunni, um mann sem rekur dónabúð í bænum og var að reyna að flytja inn sleipiefni sem var víst ekki löglegt af því það innihélt einhver deyfiefni í nógu miklu magni til að það mætti ekki selja nema í apótekum. Eitthvað sérstaklega hugsað fyrir endaþarmsmök, til að slaka á endaþarmsvöðvanum til að gera slíkt þægilegra. Skiljanleg tilhneiging svo sem þótt ekki séð það minn tebolli, en eitt fannst mér samt frekar creepy.. „Sleipiefnið sem um ræðir heitir Anal-ease [...] og er meðal annars hægt að fá það með kirsuberjabragði.“ ... Ég veit ekki hvar ég ætti að byrja að tala um hvað er rangt við þessa setningu .. sleipiefni, greinilega ætlað til þess að fara gegn einstefnu, samt framleitt með bragðefnum! Seint myndi ég fara með tunguna (frekar en nokkurn annan líkamshluta) þangað, þótt það væri kirsuberjabrað að sparigatinu, og væri ég stelpa myndi ég sömuleiðis þvertaka fyrir það að taka upp í mig eitthvað sem hefði ekið gegn minni einstefnu, jafnvel þótt það væri með kirsuberjabragði..

Kannski er ég bara svona gamaldags og íhaldssamur, en mér fannst þessi setning þarna í gæsalöppunum allavega mjög fyndin og varð að gera grín að henni Tounge

pís át
Bjölli


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband